Skilaréttur

Skil og skipti í netverslun.

Viðskiptavinir eiga rétt á að skila vörum sem keyptar eru innan 14 daga frá afhendingu. Skilaréttur rennur út eftir 14 daga.

Hafðu samband við Synir.is símleiðis eða með tölvupósti og við aðstoðum þig með skil eða skipti á vörunni.

Við endurgreiðum þá upphæð sem greidd var á synir.is þegar varan hefur skilað sér til okkar og við höfum gengið úr skugga um að hún sé óskemmd. Synir.is tekur ekki ábyrgð á þeim vörum sem eru í skilum fyrr en þær hafa borist til okkar.

Athugið: Vörur sem skilað er þurfa að vera í góðu ástandi. Neytandi skuli vera ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar sbr. 4. mgr. 22. gr. laga nr. 16/2016.

Endurgreiðsla: Við endurgreiðum vöruna með þeim greiðslumáta sem notaður var þegar varan var keypt. Endurgreiðsla fer fram þegar við höfum fengið vöruna í hendurnar og höfum gengið úr skugga um að hún sé í góðu ástandi. Það getur tekið nokkra daga fyrir endurgreiðslu að ganga í gegn.

Skipti: Hægt er að skipta vörum í aðrar vörur í versluninni. Til að afgreiða skipti skal hafa samband við verslun símleiðis eða í gegnum tölvupóst.

Gallaðar vörur: samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup þá hafa neytendur 2 til 5 ár frá móttöku söluhlutar til að leggja fram kvörtun vegna galla.